27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2881 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

Afgreiðsla þingmála

Héðinn Valdimarsson:

Frv. um virkjun Sogsins liggur hjá fjhn. Nd. Við 1. umr. var það samþ. með miklum atkvæðamun, og ég hygg, að það sé eitthvert hið mesta áhugamál fjölda manna í Reykjavík og á Suður- og Suðvesturlandi. Ég vil óska þess, að forseti taki þetta mái á dagskrá nú þegar, þótt ekki komi um það nál., þar sem svo mjög er orðið áliðið þings, því óvíst er, að hægt verði að afgr. það annars.