05.04.1933
Neðri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (1370)
145. mál, enska lánið
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ef ég man rétt, var samþ. á síðasta þingi að heimila stj. að taka allt að 12 millj. kr. lán. Og ég man ekki betur en að hæstv. forsrh., eftir að hann kom úr utanför skömmu eftir áramót, hafi látið í ljós, að hann teldi líkur til þess, að þegar gengið væri orðið fast í Englandi, þá yrði hægt að breyta enska láninu í hagkvæmara lán. Síðan hefir ekkert heyrzt um þetta. Og þó veit ég til þess, að ýmsar þjóðir hafa fengið betri lánskjör núna heldur en áður.
Þessi till. bendir stjórninni á að halda þessu máli vakandi og leita sér upplýsinga, svo hægt sé að vita, hvað gera skuli. Ég þarf ekki að taka það fram, hversu óhagstætt þetta lán er í alla staði. Það þarf ekki annað en að benda á það, að vextir af því eru 7% , eins og bankavextir, en flestar þjóðir hafa fengið vexti af sínum lánum niður fyrir þetta mark. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta meira.