22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (1389)

69. mál, sæsímasambandið

Tryggvi Þórhallsson:

Mér skildist á hæstv. forseta, að hann ætlaði að bera undir atkv. að vísa málinu til síðari umr. Ég vil vekja athygli hans á orðalagi 29. gr. þingskapa, sem segir alveg ákveðið, hvernig fari um till., ef ein umr. er ákveðin. Ég vil láta í ljós þá skoðun, að undir svona kringumstæðum eigi að koma fram ný till. og hún að fela í sér fjárhagsatriði.