04.03.1933
Efri deild: 16. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)

60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Forsrh.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég skil hv. 5. landsk. svo, að hann fylgi frv., ef ábyrgðin er bundin við eitt ár, og mun það vera af því, að hann sér, að ótti hans á síðasta þingi við þessa ábyrgð hefir ekki rætzt, heldur hafa bæði bankinn og atvinnuvegir landsmanna haft mikið gagn af þessari ráðstöfun síðasta þings. Og ég vænti, að sama gagn geti af hlotizt nú á yfirstandandi ári.