31.03.1933
Efri deild: 39. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)

49. mál, Mið-Sámsstaði

Frsm. (Pétur Magnússon):

Ég get látið nægja að vísa til grg., sérstaklega af því, að samskonar frv. gekk í gegnum hv. d. í fyrra og var samþ. mótmælalaust, ef ég man rétt. F. h. allshn. mæli ég með því, að frv. nái fram að ganga og verði nú vísað til 3. umr.