03.04.1933
Efri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)

49. mál, Mið-Sámsstaði

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Út af þessari fyrirspurn hv. 2. landsk. skal ég taka það fram, sem reyndar mun segja sig sjálft, að það er ekki hugsunin að selja Búnaðarfél. þessa jörð til þess að það braski með jörðina. Ég hefi fyrir mitt leyti ekkert á móti því, ef þessi sala fer fram á meðan ég fer með þessi mál, að það skilyrði sé sett í kaupsamningana, að Búnaðarfél. megi ekki selja þessa jörð a. m. k. öðruvísi en með samþ. kirkjumálaráðuneytisins.