22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Héðinn Valdimarsson:

Það er ákaflega eðlilegt, að menn vilji vekja athygli á þessu máli, eins stórt og það er, og ég játa, að það er skoðun okkar, sem erum andstæðingar málsins, að enginn þm., sem greiðir atkv. með samningunum, eigi að verða kosinn aftur á þing.