23.03.1933
Neðri deild: 34. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Héðinn Valdimarsson:

Ég vil spyrja hæstv. forsrh., hvort hann geti ekki fallizt á að fresta framgangi þessa máls, því að enn er nokkuð eftir af þeim tíma, sem áskilinn er í samningunum. Mætti vel fresta málinu, til þess að sjá, hver áhrif það hefir á samninga okkar við Breta.