10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)

90. mál, vitagjald

Magnús Jónsson:

Ég stend aðeins upp vegna þess, að mér sýnist brtt. n. ekki vera alveg fullnægjandi eins og hún er. Það komst óvart skekkja í tilvitnun á l., sem breytt er með þessu, en það þarf að breyta því bæði í gr. og fyrirsögninni, en brtt. er einungis við fyrirsögnina. Ég býst við, að atkvgr. mætti haga þannig, að tilvitnunin breyttist á báðum stöðum, annars má auðvitað breyta þessu við 3. umr., ef forseti sér sér ekki fært að breyta þessu nú í báðum tilfellum.