25.03.1933
Neðri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

98. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Eins og nál. 235 ber með sér, hefir n. orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. með þeirri lítilfjörlegu breyt., að lögin yrðu tímabundin, þannig að þau gildi aðeins til ársloka 1935. — Hefi ég ekki annað að segja en óska, að frv. verði að lokinni umr. samþ. til 3. umr.