17.03.1933
Neðri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1712 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég vil benda hv. þdm. á það, að frv. þetta er, eins og þeir sjá, flutt af n., og það er ekki mjög algengt að vísa máli, sem ein n. ber fram, til annarar. Ég sé út af fyrir sig ekkert við það að athuga, en ég vildi aðeins benda á, að það er ekki venja að láta mál ganga í gegnum tvær n.