17.03.1933
Neðri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fyrst hér er um að ræða að afla ríkissjóði tekna, þá á málið vitanlega heima hjá fjhn.; og þegar um það er að ræða að afla fjármuna, þá er það umhugsunaratriði, hvort ríkissjóður getur látið allar þessar tekjur af hendi í nokkrum alveg sérstökum tilgangi.