18.04.1933
Neðri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (2120)

160. mál, veð

Frsm. (Guðbrandur Ísberg):

Það er alveg rétt, að þetta frv. er ekki lagt fram sem atvinnubótafrv., en í mörgum tilfellum mundi fara svo, að ákvæði þess mundu gera bönkunum kleift að lána fé til atvinnurekstrar, sem ella yrði að leggja niður. Og það hélt ég ekki, að hv. 2. þm. Reykv. mundi telja einskis virði.