18.03.1933
Efri deild: 28. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

106. mál, útsvör

Flm. (Einar Árnason):

Ástæðurnar fyrir því, að frv. þetta er borið hér fram, eru teknar fram í grg., og vísa ég því til hennar í því efni. Vona ég, að þar sé gerð sú grein fyrir frv., sem nauðsynleg er til þess að hv. þdm. geti áttað sig á því, og vil svo aðeins leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn., að þessari umr. lokinni.