22.04.1933
Neðri deild: 55. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (2240)

154. mál, áveitu á Flóann

Forseti (JörB):

Það kann að vera, að hv. þm. V.-Húnv. þykist beittur harðræði, hafi hann ekki kynnt sér málið fyrr en nú. En það er engin afsökun, og vænti ég þess, að hann haldi ekki fast við beiðni sína um, að málið verði tekið af dagskrá.