04.04.1933
Neðri deild: 44. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (2262)
148. mál, hegningarlöggjöfina
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Það var fyrst tekið í l. hér á landi árið 1907, að skilorðsbinda mætti dóma. Hefir þetta síðan verið talsvert notað og gefizt vel. Þó eru l. þannig, að ekki má dæma skilorðsbundnum dómi aðra en þá, sem brotlegir hafa orðið við hin almennu hegningarl. En nú fjölgar stöðugt refsiákvæðum, sem liggja utan við þau. Kemur það undarlega fyrir sjónir, að dæma skuli mega skilorðsbundnum dómi þá, sem brotlegir verða við aðalrefsil., en ekki þá, sem framið hafa smærri brot. Kem ég því með frv. þetta, um að skilorðsbinda megi alla dóma, nema fjársektardóma. Kemur auðvitað ekki til mála að skilorðsbinda þá.
Vona ég, að þetta frv. muni ekki valda miklum ágreiningi. Vil ég svo óska, að því verði vísað til allsherjarnefndar að umr. lokinni.