18.03.1933
Efri deild: 28. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)
111. mál, útflutningsgjald
Flm. (Ingvar Pálmason):
Eins og getið er um í grg., er frv. þetta afleiðing af því frv., sem ég hefi nýlokið við að mæla fyrir (um útflutningsgjald af síld o. fl.). Gengur það út á að gera vörutegundir þær, sem ég í því frv. ræddi um, undanþegnar l. nr. 70 frá 1921, um almenn útflutningsgjöld.
Sé ég ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en óska, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn., að þessari umr. lokinni.