16.05.1933
Efri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (2414)

195. mál, Þingvallaprestakall

Jakob Möller [óyfirl.]:

Mér finnst þetta óþarfa deila. Þessi till. er frá hendi flm. stíluð sem ályktun Ed. Alþingis, og er ekki ætlazt til, að hún gangi nema í gegnum þessa d. Liggur því í hlutarins eðli, að gildi ályktunarinnar verður eftir því, en ekki slíkt og yrði, ef till. hefði náð samþykki beggja d. við tvær umr. í hvorri d. Það er því ástæðulaust, þar sem till. verður aðeins rædd í annari d. þingsins, að láta fara fram tvær umr. um till.