18.04.1933
Neðri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (2490)

99. mál, björgunarstarf og eftirlit með fiskibátum á Vestfjörðum

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vil í þessu máli aðeins skírskota til þess, sem ég sagði um málið, sem verið var að afgreiða (till. um björgunarstarf á Faxaflóa), því að það er samskonar mál, og n. var sammála um að afgr. það á sama hátt. Þarf því ekki neinu við það að bæta. N. leggur til, að málinu verði vísað til stj.