01.03.1933
Neðri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í D-deild Alþingistíðinda. (2526)

50. mál, styrk handa lækni til að nema lyfjafræði

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Þetta mál er þannig vaxið, að farið er fram á þriggja ára fjárveitingu. Ákvæði fjárl. eru að jafnaði ekki bindandi nema til eins árs. En eins og ég sagði áðan, geri ég ekki að deiluatriði, í hvora nefndina málið fer, og sætti mig við það, sem ofan á verður í því efni.