16.05.1933
Efri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (2593)

95. mál, alþýðuskóla á Eiðum

Frsm. (Jón Jónsson):

Menntmn. hefir athugað þær breyt., sem orðið hafa á þessu frv. í Nd. Þær eru ekki svo mjög stórvægilegar, aðeins þær, að þessi ákvæði eigi aðeins að koma sem breyt. á upphaflegu l. um stofnun Eiðaskóla, en með frv. eins og það lá fyrir hér var ætlazt til, að þetta yrðu heildarlög fyrir Eiðaskóla, en hin upphaflegu l. féllu úr gildi. N. telur í sjálfu sér, að þetta sé nokkru klúðurslegra, en þar sem þetta hefir ekki raunverulega þýðingu, þá leggur hún til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.