12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)
133. mál, lokunartími sölubúða
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég held, að þegar þetta mál fór til allshn., hafi ég afhent einhverjum nm. bréf, sem mér hefir borizt, þar sem er beiðni um það, að þetta frv. nái einnig til kauptúna, en ekki eingöngu til kaupstaða. Ég vil gera fyrirspurn til hv. n. um það, hvort hún hafi athugað það atriði, og hvort hún telji ekki svipaða ástæðu til að láta þessi ákvæði ná einnig til kauptúna, a. m. k. hinna stærri. Mér finnst eins ástæða til að láta þessi ákvæði ná til stærri kauptúna, og það því fremur, sem það er siður að hafa búðir lengur opnar í kauptúnum heldur en í kaupstöðum.