20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (3020)

28. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég vil minna hv. þm. Borgf. á það, að þó mál þetta væri fellt á síðasta þingi hér í hv. d., þá er vitanlegt, að þingvilji var fyrir framgangi þess. Það var aðeins af því, að það vantaði einn hv. þm. í d., þegar atkvgr. fór fram um frv., að það fór sem fór. Þess vegna var það, sem gert var eftir þing, í fullu samræmi við þingviljann.