06.04.1933
Neðri deild: 46. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (3041)

94. mál, vigt á síld

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það eru fáir dagar síðan ég lýsti því yfir hér í d., að allt væri enn óafgert um það, hvort Hesteyrarmálinu, sem hv. þm. Ísaf. kallar svo, yrði áfrýjað til hæstaréttar eða ekki. Hefi ég ekki haft tóm til að athuga málið enn, og ætti hverjum manni að vera auðsætt, að í mestu annatímum þingsins er ekki tími til að taka ákvarðanir í eins umfangsmiklu máli sem þessu.