17.05.1933
Efri deild: 74. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (3158)
197. mál, innflutningur á jarðeplum
Jón Þorláksson [óyfirl.]:
Ég get tekið undir allt það, sem hv. 2. landsk. sagði um þetta mál. Það er augljóst, að kartöfluframleiðsla sú, sem nú er í landinu, er allsendis ónóg handa landsmönnum, og til þess liggja margar ástæður. Sumar þeirra nefndi hv. þm., svo sem þá, að sumstaðar væri of kalt fyrir kartöflurækt. Ég álít það ekki nema gott, að hlynnt sé að hverskonar nytsamri innlendri framleiðslu eða atvinnugrein, en ég tel, að ekki nái nokkurri átt að gera það á þann hátt að varna því, að landsmenn geti fengið góða nauðsynjavöru með eðlilegu verði með því að knýja þá til þess að nota innlenda framleiðslu, sem bæði er verri og dýrari en sú vara, sem hægt er að fá frá útlöndum, en það er gert með því að fá stjórnarvöldunum heimild til að láta Búnaðarfélagið, sem er einhliða stéttarfélag framleiðendanna, ákveða um þetta. Annað eins og þetta sýnist mér alveg fráleit ráðstöfun, og mér datt satt að segja ekki í hug, að slík till. mundi koma hér fram, er gengi svo mjög á hagsmuni og rétt allra þeirra borgara þjóðfélagsins, er hvorki hefðu jarðnæði né garðlendi til þess að sjá sér fyrir þessari vöru. Og það verður að teljast algerlega óverjandi af Alþingi að svipta þessa menn, sem aðallega er þurrabúðarfólk, svo hollri og nauðsynlegri fæðu án þess að fulltrúar þeirrar stéttar fái nokkru um það að ráða, heldur eingöngu leggja það í vald fulltrúa þeirra, sem eingöngu hafa hag af þessum ráðstöfunum. Ég hefi fullan vilja á því að greiða fyrir eflingu innlendrar framleiðslu, en ég mun sýna það með atkv. mínu um þetta mál, að ég tel þessa aðferð algerlega ranga og óleyfilega. Þess vegna mun ég greiða atkv. á móti því, að frv. fari til 2. umr. En ef svo fer, að það skyldi ná samþykki til 2. umr., þá legg ég til, að því verði vísað til hv. allshn., í von um, að sú n. líti á málið frá hlið beggja aðilja.