24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2084 í B-deild Alþingistíðinda. (3336)
117. mál, barnavernd
Magnús Jónsson:
Ég var því miður ekki við fyrri hluta umr. og veit því ekki, hvað gerzt hefir í málinu, en mér er sagt, að farið hafi verið fram á í nefndinni, að ég tæki till. mína aftur. Ég vildi samt heyra rök hv. n., áður en ég tæki hana aftur. Mér hefir verið tjáð, að barnaverndarráðið hafi sent bréf til kvikmyndahúsanna úti um land, til þess að fá vitneskju um það, hvað margar myndir þau fengju frá útlöndum og hversu mikið af þeim gangi í gegnum Reykjavík. Ástæðan til þess, að ég vil hafa eftirlitsmenn fleiri en einn, er sú, að ég tel það mikinn létti fyrir þau kvikmyndahús úti á landi, sem vildu fá myndir sínar beint frá útlöndum. Ég vildi gjarnan, að málinu yrði frestað til morguns, svo að ég gæti borið mig saman við hv. n.
En svo að öllu gamni sé sleppt, þá ætti að vera hægt að fá samkomulag um þetta við hv n., hvort sem nú þessi eftirlitsmaður verður einn eða fleiri. Annars er frv. þetta lítils virði, nema þá helzt ákvæðið um að banna, að börnum sé sýnt það, sem telja má þeim skaðlegt. Er því varla hægt að segja, að það geri til eða frá, þótt það dagi uppi á þessu þingi. Mér virðist flest ákvæði þess vera til þess fædd að verða dauður bókstafur.