29.04.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2215 í B-deild Alþingistíðinda. (3440)

172. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Frsm. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um þetta frv. nú. Ég vék að því í sambandi við frv. um kreppulánasjóð, og er það einn liður á þeirri sömu frv.röð og það frv.

Í grg. er gerð grein fyrir þeirri upphæð, sem hér er um að ræða og gert er ráð fyrir af hálfu kreppunefndar. Við 2. umr. verður gerð nánari grein fyrir einstökum atriðum frv. Ég hefi því enga aðra ósk fram að bera en að frv. verði vísað til 2. umr.