24.03.1933
Efri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (3555)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Halldór Steinsson:

Ég er á sama máli og hv. 2. landsk. um, að ekki beri að flýta afgr. frv., því að það hefir í för með sér allverulega skerðingu ríkissjóðstekna, og tel ég því ekki, að frv. sé rétt afgr. án þess að fjmrh. hafi látið í ljós álit sitt á því, að hvaða leyti og hve mikið þetta hafi áhrif á ríkissjóð. Ég verð að segja, að fjmrh. hafi sýnt mikið tómlæti með því að sýna sig ekki í deildinni á meðan umr. fóru fram. Vil ég því taka undir með þeim, sem vilja taka málið af dagskrá, svo að hv. d. geti síðar fengið tækifæri til þess að heyra álit hæstv. fjmrh.