06.05.1933
Efri deild: 65. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2285 í B-deild Alþingistíðinda. (3584)

77. mál, virkjun Sogsins

Jón Baldvinsson:

Áður en fundi er slitið vil ég spyrja hæstv. forseta, hvort hann getur ekki tekið á dagskrá mánudagsins frv. til l. um virkjun Sogsins, af því að það er svo mikilsvert mál og þyrfti að komast sem fyrst til Nd. Ef það verður ekki tekið fyrir á mánudag, þá frestast afgreiðsla þess héðan úr d. um einn dag.