29.03.1933
Efri deild: 37. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (3624)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Jónas Jónsson:

Ég held fast við það að átelja hæstv. forseta fyrir, að hann beitir flokkana misrétti um að ganga eftir því, að einstakir þm. tilgreini ástæður. Og hann getur ekki með neinum rökum mótmælt þeirri ástæðu, sem ég hefi fært fram fyrir því, að ég greiddi ekki atkv. Að öðru leyti kemur hæstv. forseta ekki við, hvort þm. greiða atkv. eða ekki, þegar ástæður eru færðar fram.