17.05.1933
Neðri deild: 76. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (3633)
36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vildi aðeins, vegna þess, sem hv. frsm. minni hl. sagði, bæta því við, að sjávarafurðir eru líka í lágu verði, því vitað er, að þær eru ekki í hærra verði en þær voru í fyrir stríð, og að sjávarútvegurinn hefir auk þess orðið að gjalda sem svarar 10 og upp í 20% í toll af þeim innfluttum vörum, sem hann hefir þurft að nota til sinnar framleiðslu, og ríkissjóður hefir þannig tekið miklu stærri skerf af framleiðslu hans heldur en landbúnaðarins. Auk þess ættu menn að minnast þess, að þeir, sem eru fulltrúar þeirra manna, sem lifa sérstaklega á sjávarútvegi, hafa gengið fúslega að því að leggja á sig aukaskatta, sem á sumum árum hafa numið allt að 1 millj. kr., til þess að styrkja landbúnaðinn sérstaklega. Ég er hræddur um, að svona smámunasemi og heimskuleg síngirni, eins og með þessu frv. kemur fram, geti skapað þá andúð, sem verði landbúnaðinum þyngri í skauti en þær fáu krónur, sem hér er um að ræða. Ég vil því eindregið mælast til þess, að þetta frv. verði ekki látið ganga fram, með það sérstaklega fyrir augum, að spilla ekki þeim góða hug, sem allir hafa sýnt landbúnaðinum á undanförnum þingum, líka þeir, sem hafa lagt mikið á sig til þess að styðja hann.