12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (3716)

93. mál, ábúðarlög

Frsm. (Jón Jónsson):

Mér skildist nú á hv. 2. landsk., að dálítil von myndi vera um, að hann greiddi atkv. með frv., og þótti mér vænt um að heyra það. Ég þakka honum líka fyrir umhyggju hans fyrir afstöðu minni til flokks míns, en þó býst ég við að gera upp sakirnar við flokk minn án hans íhlutunar, ef á þarf að halda.