12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (3830)

169. mál, einkennisbúninga og önnur einkenni

Forseti (JörB):

Það féllu hér nokkur ummæli hjá hv. síðasta ræðumanni í garð erlendrar ríkisstjórnar, sem eru með öllu óviðeigandi. Vænti ég, að hv. þm. gæti þess í þessum umr. sem öðrum, að sveigja ekki að erlendum þegnum eða erlendum stjórnarvöldum.