02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (3947)
178. mál, útflutning á kjöti
Pétur Ottesen:
Sú eina breyt. hefir verið gerð á þessu frv. í hv. Ed., að skotið var inn ákvæði um það, að stj. hefði heimild til að grípa inn í um fyrirkomulag á sölu á kjöti innanlands, ef mjög mikið verður af kjöti á innlendum markaði. Engar aðrar breyt. hafa verið gerðar á frv. Það hefir verið mikið rætt um að gefa stj. heimild til slíkra ráðstafana í einhverri mynd, og varð það ofan á, að landbn. Ed. tók upp till. um það.