01.06.1933
Efri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2479 í B-deild Alþingistíðinda. (4021)

126. mál, tékka

Frsm. (Jón Þorláksson):

Um þetta frv., sem er langur bálkur, er það sama að segja og næsta mál á undan á dagskránni (frv. til víxillaga), að fjhn. þessarar d. fékk það svo seint til meðferðar, að hún hafði engin tök á því að athuga einstök ákvæði þess og bera saman við þá erlendu löggjöf, sem á að vera til fyrirmyndar um samningu frv. En af sömu ástæðum, sem ég færði áðan fram, hefir n. ekki viljað stöðva framgang málsins á þessu þingi, og leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.