25.03.1933
Neðri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (4028)

127. mál, varnarþing og stefnufrest í víxilmálum

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þetta frv. er borið fram í sambandi við frv. um víxla, og óska ég, að því verði einnig vísað til fjhn.

Ég vil geta þess til leiðbeiningar, að inn í frv. hefir slæðzt mjög bagaleg prentvilla í 3. gr., þar sem talað er um tékka, en á vitanlega að vera víxla, og þarf að laga þetta með brtt.