15.05.1933
Neðri deild: 74. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (4074)

191. mál, mjólkurbúastyrk og fl.

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég vil aðeins leyfa mér að mæla með því, að skrifl. brtt. frá hv. þm. Borgf. verði samþ., því hún felur í sér þau atriði, sem sérstaklega verður að taka til greina í þessu máli. En það er, að ekki skapist fordæmi, sem þingið teldi sig bundið við í framtíðinni, og að málið verði vel athugað áður en það fær fullnaðarafgreiðslu frá stj.

Skal ég svo ekki lengja umr. frekar.