19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2585 í B-deild Alþingistíðinda. (4147)
186. mál, sala mjólkur og rjóma
Ólafur Thors:
Ég tel, að búið sé að ræða þetta mál svo ýtarlega hér í deildinni, að það sé fullkomlega ástæðulaust fyrir mig að bæta nokkru við þau rök, sem hv. frsm., þm. Mýr., bar fram til andmæla því, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði í ræðu sinni. Ég tel málinu stafa mestur voði af því, ef því seinkar vegna málþófs, og vil ég ekki eiga neinn hlut að slíku.
Ég get endurtekið það, eða sagt hið sama og hv. þm. Mýr. benti á í ræðu sinni, að það er byggt á misskilningi hjá hv. 4. þm. Reykv., þegar hann telur, að frv. skerði rétt þeirra, sem eru innan vébanda Rvíkur. Ég get hætt því við, að brtt., sem undanskilur rjóma, jafngildir því, ef hún yrði samþ., að frv. yrði fellt. Hv. þdm. ættu þess vegna að gera sér fulla grein fyrir því, að ekkert lið verður í þeim til stuðnings við frv., ef þeir samþ. þessa brtt. Svo vænti ég þess, að hv. þdm. hafi nú sagt nóg um þetta mál, og að það megi fara að koma til atkvæða.