02.06.1933
Efri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2616 í B-deild Alþingistíðinda. (4174)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. (Jón Jónsson):

Mér þykir gott að heyra, að fulltrúar þeirra, sem þetta tekur mest til, hv. 1. landsk. og hv. 2. þm. Árn., skuli geta sætt sig við breyt., þótt ég taki undir það með hv. 5. landsk., að þessi meðferð á frv. sé leiðinleg. En ég efast um, að það væri til gæfu fyrir mjólkurbúin að þröngva þessu máli í gegn með mikilli andúð viðskiptamannanna.