07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í C-deild Alþingistíðinda. (4329)

65. mál, prestkallasjóð

Bergur Jónsson:

Ég heyrði hv. flm. leggja til, að málinu yrði vísað til allshn., en þar sem hér á að stofna sjóð til eflingar kristindómi, fyndist mér eðlilegra að vísa því til menntmn., enda hefir það verið gert á undanförnum þingum.