23.05.1933
Neðri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2646 í B-deild Alþingistíðinda. (4332)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég hefi fært sterkar sannanir fyrir því, og skal gera það betur, að hér er um þýðingarmikla atvinnugrein að ræða bæði fyrir sjómenn og verkamenn. Ég vil því mótmæla tilraun hv. þm. Borgf. að leggja stein í götu málsins, og mælist til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið ekki af dagskrá.