09.03.1933
Neðri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í C-deild Alþingistíðinda. (4362)

81. mál, sjúkrasjóð ríkisins

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Frv. þetta miðar í þá átt að koma betra skipulagi á úthlutun þess fjár, sem ríkið veitir árlega til læknishjálpar fátækum sjúklingum með persónuveitingum. Hefi ég átt tal við fjvn. um málið, og tók hún vel í það. Sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um frv., en geri það að till. minni, að því verði vísað til fjvn. að þessari umr. lokinni.