30.05.1933
Efri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2673 í B-deild Alþingistíðinda. (4377)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Ingvar Pálmason:

Ég á sæti í n., og ég sé enga ástæðu fyrir þann hluta hennar, sem ég tilheyri, að málið sé tekið af dagskrá. Sá hluti ætlar ekki að flytja brtt., og ef aðrir ætla sér það, er nægur tími til þess enn.