18.03.1933
Neðri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

3. mál, landsreikninga 1931

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég hefi ekki þau plögg við hendina, sem mér eru nauðsynleg til þess að geta svarað þessari fyrirspurn fyllilega, enda er hér um að ræða þær ráðstafanir, sem eru eldri en svo, að ég hafi haft þær með höndum. En ég get upplýst, að þarna eru innifaldir ýmsir stórir kostnaðarliðir, sem venja er að telja til stofnkostnaðar, svo sem byggingar, keyptur búpeningur og bús- og húsmunir o. þ. h. En ég mun síðar við tækifæri geta gefið hv. þm. rækilegar upplýsingar um þetta atriði.