26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2820 í B-deild Alþingistíðinda. (4554)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Jónsson:
Ég skal ekki misnota leyfi hæstv. forseta til þess að gera aths. Það var aðeins eitt atriði, sem ég vildi benda á. Ég sé ekki neitt í þessu stjskrfrv., sem bindi, hvað marga menn megi hafa í kjöri á landslista, og þess vegna sé ég ekki annað en að það sé eins fært fáum stórum flokkum að binda sig við landslista, að öðru leyti en þessi 5 sæti, ef þeir vilja snúa kosningunni þannig.