09.05.1933
Neðri deild: 69. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (4758)

187. mál, lögreglustjóra í Akureyrarkaupstað

Flm. (Guðbrandur Ísberg):

Þetta frv. er flutt eftir ósk bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar, sem leggur mikla áherzlu á, að það nái fram að ganga.

Ég vil ekki við þessa umr. færa fram þau helztu rök, sem fyrir málinu liggja, en ég vænti þess, að hv. d. lofi því að ganga til 2. umr. og allshn., sem væntanlega tekur málið til rækilegrar athugunar í samráði við dómsmálaráðuneytið.