27.02.1933
Neðri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

4. mál, bifreiðaskatt og fl.

Héðinn Valdimarsson:

Ég vildi gjarnan beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., sem mun vera fulltrúi Sjálfstæðisfl. í ríkisstj. og þá líklega oddviti flokksins í þessari hv. d., hvernig það sé með afstöðu flokksins gagnvart tekjuöflunarfrv. Það hefir komið fram yfirlýsing nýlega frá Jóni Þorlákssyni því máli viðvíkjandi, og ég vildi gjarnan vita, hvernig er afstaða hv. sjálfstæðismanna í Nd.