02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (4797)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Páll Hermannsson:

Ég er ekki við því búinn að koma með skrifl. brtt. Ég hefi ekki athugað nákvæmlega, hvaða breyt. kynnu að þurfa að verða á frv. í sambandi við þá í sjálfu sér einföldu till., að heimila einnig, að tekið verði eignarnámi það land, sem ég talaði um í gær.