02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í C-deild Alþingistíðinda. (4845)

57. mál, hámarkslaun

Jón Jónsson:

Ég er því hlynntur fyrir mitt leyti að lækka hærri laun frá því, sem nú er, en tel þetta frv. að ýmsu leyti svo gallað, að það nái ekki tilganginum, auk þess sem það dregur úr hvöt manna til að afla fjár, en það tel ég mjög svo óheppilegt.