06.05.1933
Efri deild: 65. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í C-deild Alþingistíðinda. (4950)

182. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur

Flm. (Jónas Jónsson):

Þetta mál er áður kunnugt hér í þd., því að það var flutt hér í fyrra seint á þinginu, en náði þá ekki afgreiðslu. Í inngangi þeirrar grg., sem fylgir frv., eru teknar fram ástæðurnar fyrir því, að frv. er nú aftur flutt á þessu þingi, og vísa ég til þeirra.

Ég legg til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til hv. fjhn.